Dagana 11-13. mars hélt hópur íslenskra ungmenna undir handleiðslu Félags Sameinuðu þjóðanna til Helsinki á opnunarráðstefnu norræns ungmennaverkefnis sem er samvinna milli Félags SÞ í Finnlandi, Svíþjóðar og Íslands. ‘Hæft ungt fólk hvetur til heildrænnar nálgunar á sjálfbærri þróun og grænum umskiptum’ er heiti verkefnisins sem er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni.
Verkefnið miðar að því að ungmennin fræðist um sjálfbæra þróun og mannréttindi, eftirlits- og skýrslugjafarkerfi innan SÞ og í viðkomandi Norðurlöndum. Þá er lagt sérstaka áherslu á að ungmennin öðlist færni til þess að leggja markvisst af mörkum til landrýniskýrslna (Voluntary National Reviews), annað hvort sem hluta af skýrslu stjórnvalda eða í skuggaskýrslum borgarasamfélagsins, sem taka mið af stöðu innleiðingar heimsmarkmiðanna.
Í verkefninu koma saman ungmennafulltrúar Félaga SÞ, ungmennafulltrúar hjá SÞ og önnur virk ungmenni frá Finnlandi, Svíþjóð, Íslandi og Eistlandi auk fulltrúa í ungmennaráði Sama.
Á opnunarráðstefnunni fóru fjögur íslensk ungmenni, þar af voru þrjú sérstaklega valin úr hópi umsækjenda og svo ungmennafulltrúi Íslands hjá SÞ á sviði sjálfbærrar þróunar. Þá var Hafdís Hanna Ægisdóttir, formaður Sjálfbærnistofnunar hjá Háskóla Íslands með opnunarerindi um smitáhrif (e. spillover effect) og mælingar á þeim í norrænum samanburði og hvað hægt sé að gera til þess að minnka þau en Sjálfbærnistofnun HÍ framkvæmdi úttekt að beiðni stjórnvalda í fyrra á smitáhrifum Íslands fyrir landrýniskýrslu Íslands en hana má lesa hér.
Hátt í 40 ungmenni tóku þátt í opnunarráðstefnunni sem stóð yfir tvo daga. Meðal annarra erinda á dagskrá var sérstök umfjöllun Félags SÞ á Íslandi um stöðumat borgarasamfélagsins í skýrslu stjórnvalda sem kynnt var í júlí sl. hjá SÞ, aðkomu ungmenna í íslensku skýrslunni og hvað má gera betur, hvernig landrýniskýrslur geta haft áhrif á alþjóðlega stefnumótun og að lokum erindi um græn umskipti og áhrif þeirra á samfélag Sama í Finnlandi.
Næst verða tveir viðburðir haldnir í lok apríl og júní þar sem ungmennin fá frekari fræðslu, tæki og tól í hendurnar til þess að vinna áfram verkefnið og verður það haldið af Félagi SÞ í Mannréttindahúsinu og verða þær vinnustofur opnar áhugasömum ungmennum. Í haust lýkur svo verkefninu á lokaráðstefnu í Eistlandi.
The post Íslensk ungmenni á ráðstefnu í Helsinki first appeared on Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.